Tender, Love and Care
12.12.2007 02:42:59 / sonja

...

Komnar heim ... ógislega gaman hjá okkur eins og alltaf.

Ævintýri á hverjum degi 8)

Smellum kannski inn myndum af þessum viðburði síðar

Takk fyrir snildar ferð stelpur !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:59:08 / sonja

New York New York ....

 

 Hérna lendum við í lok nóvember .... þetta verður svaðalegt !!!

 Bara að minna ykkur á þetta :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 12:28:07 / sonja

Lífið er yndislegt .... sjáðu það er rétt að byrja hér ....

Jæja ég er á leiðinni til eyja á morgun ... og já veðurspáin gerir ekkert annað en að verða betri og betri 8) og þeir sem hafa hætt við vegna hræðslu við veðurspána ættu bara að hanga heima um helinga með smá móral og öfundsýki .... hehehe   nei ég segi nú bara svona!!! Maður er oðin svo klikkaður!!!

Við heyrumst bara eftir helgi og góða skemmtun öll sömul um helgina.

P.s. Soffía góða ferð til Grænlands !!! 8|  hehehe

 .... og þið sem ekki vitið af því þá er ég flutt í nýja íbúð og allir velkomnir að kíkka í heimsókn þegar þið eigið leið hjá ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 02:09:56 / sonja

Sumarið er tíminn ...

Lítið að frétta erum bara að vinna eins og vitleysingar til að borga upp skuldir okkar eftir Tailand og að reyna að safna okkur fyrir New York skvísu ferðinni í desember 8)

 Ef það er eitthvað að frétta af þér ... kommentaðu endilega hérna fyrir neðan ...


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 13:09:28 / sonja

Orðnar Hjúkrunarfræðingar !!!

 

Síðastliðin laugardag útskrifuðumst ég og Pálína sem HJÚKRUNARFRÆÐINGAR 8) frá Háskólanum á Akureyri. Dagurinn var í alla staði velheppnaður og fögnuðum við þessum áfanga með fjölskyldu og vinum á laugardaginn.

Sjáumst hress í sumar ;)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 09:03:33 / sonja

Tailand baby!!!

 

eg a afmaeli i dag !!! kellingin ordin 25 ara og er stodd ut a tailandi !!!

Buin ad fa eina afmaelisgjof og einn kokteil fra stelpunum fyrir hadegi !!!

Sidan skellti eg mer i tailenst-nudd herna a hotelinu i hadeginu

Bydjum ad heils hedan fra tailandi 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 23:14:13 / Pálína

vika í Hua Hin

 

  1. Við erum búnar að skila lokaverkefninu:lol:
  2. próflokadjammið var geðveikt skemmtilegt og Dj Páls og MC Sophie voru sko að standa sig...
  3. Matarboðið gekk stórvel og mjög skemmtilegt...
  4. ég er ánægð með kosningarnar...
  5. það er vika í Thailand.
  6. við erum að fara í sveitina til Kristjönu á morgun
  7. það eru 3 dagar í kynninguna á lokaverkefninu
  8. það eru 2 dagar þangað við sjáum prinsinn hennar Sólveigar...
  9. það eru 4 dagar þangað til ég kem suður...
  10. og ég elska ykkur öll...

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 20:40:28 / sonja

Súlur ...

Lagt af stað ...

Kristjana til í tuskið ...

 

Konni leiðstögumaður með meiru...

Flottar !!!

Akureyri hulinn þoku...

 Súlur nálgast 114

 Hópurinn

 Smá snjór

 Kaffipása

 

 

Syðri súlur 1215 metrar

 Á toppnum

Smá bratti

 Glerárdalur

 Toppurinn á Súlum

 

Á niðurleið

tekin smá salibuna

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 20:43:48 / Pálína

bongo....

 

Úff það er búið að vera rosalegt veðrið hérna bara eins og maður sé á Mallorka..... sundlaugin er búin að vera annað heimilið okkar... við erum á lokastigi með ritgerðina þannig að við náðum að njóta sólarinnar annsi vel... en við látum eins og við séum í útlöndum.. fáum  okkur bjór á kvöldin og svona.... það eru líka eiginlega allir sem að við þekkjum eru í prófum þannig að þeir eru allir inni að læra og fá náttúrulega alla okkar samúð.

Sonja, Anna Huld og Kristjana skelltu sér svo á Súlur í dag í góða veðrinu... sem var víst æði Sonja kannski skellir inn myndum..

Svo erum við komnar með nýtt gæludýr en hún heitir Soffía og er mjög blíð og góð..

bið að heilsa úr blíðunni...


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 12:51:15 / sonja

Þetta styttist ...

 

  • Búnar að kaupa okkur miða til Tailands !!! 8)
  • Lokaverkefnið okkar er orðið 65 blaðsíður
  • Það fer í prófarkalestur eftir 5 daga
  • og prentun eftir 8 daga :D
  • Þá er það bara sól og blíða hjá okkur hér á Akureyri þangað til við þurfum að verja ritgerðina 18. maí.
  • Síðan er það bara Tailand baby 22. maí :D
  • og öllum boðið í 25 ára afmæli þann 25 maí ... reyndar út á Tailandi .. ég skil alveg ef það komast ekki allir ...híhíhí :haha:

p.s. puma - skórnir mínir skiluðu sér loksins aftur í ræktina ... sem betur fer.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 20:32:16 / sonja

Blessuð sé minning PRAVDA !

Þetta er búin að vera rosalegur dagur ... Pravda bara brunnið til ösku. Ekki það að maður hafi nú verið fastakúnni þarna ... en það var einmitt fínt að kíkka þangað þegar manni langaði að breyta til á djamminu. En já við vinkonurnar fórum nú eitthvað að spá í því hvernig það væri að vera slökkviliðsmaður og í framhaldi af því hver launin væru svona í samræði við áhættuna sem getur fylgt þessu starfi. Og hvað haldið þið ... 155.124 krónur í grunnlaun !!! 8| eftir 6. mánaða starf og hafa lokið grunnámi í sjúkraflutningum. Þetta er náttúrulega til háborinnar skammar! Finnst mér að ráðamenn þjóðarinnar mættu nú fara að athuga þetta betur og ættu að fara að endurskoða það að borga öllum þessum forsetum yfir 1,5 milljónir á mánuði skattfrálst!

 

            En allavegana við stelpurnar skelltum okkur í ræktina áðan og ekkert að því. Nema þegar við vorum að fara þá fatta ég að skórnir mínur eru horfnir !! :cry: Jebb það var einhver búin að taka rispuðu og skítugu puma skóna mína ... búhúhú !!! Þannig að ef einhver hefur séð þessa skó ...

þeir eru reynsar svartir og gráir kannski aðeins meira rispaði og skítugri  þá endilega látið mig vita.

En við erum farnar að vinna í lokaverkefninu og að sötra smá rauðvín og bjór 8) ... ekkert að því leiðbeinandinn okkar sagði okkur að gera þetta ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 19:15:12 / Pálína

Mjög góður dagur...

 

17. apríl er í dag og það var bara hinn besti dagur:)

það helsta var að hún Sólveig okkar eignaðist lítinn prins í dag. 13 merkur og 50 cm. Allt gekk rosalegavel að sögn mömmu hennar sem var alveg í skýgjunum yfir þessu öllu saman.. Sólveig var nú ekki lengi að þessu eins og svo mörgu öðru he he.  Við bíðum núna bara spenntar eftir mynd.. en okkur langar helst að brunna suður til að sjá hann.

 

Svo í dag var síðasta kennslustund okkar í Háskólanum á Akureyri.. það var bara nokkuð fínt fín tími með Dr Sigríði. he he ég stoppaði nú samt tímann til þess að segja fréttirnar af Sólveigu:) og allir klöppuðu..

Allt gengur annars sinn vana gang hér.. erum búnar að skila síðustu 3 köflunum til Hildigunnar og hittum hana svo á morgun til að fá gagnrýni á þeim.  vonandi kemur þetta bara vel út svo við getum bara drifið í að klára hana... Blaðið er svo bara í prentun og við bíðum mjög spenntar að sjá útkomuna okkar.. Það eru bara 36 dagar í Tailand og fengum við smá forskot í dag því það var smá útskriftarfundur.. úff það er svo mikil spenna í bekknum að það hálfa væri nóg:)

 

Þangað til næst gleðikveðjur Pálína og Sonja

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 22:49:41 / Pálína

hætt við Tailandsferðina og farin á klepp...

 

það er merkur dagur hjá mér á morgun.. ég fer með blaðið sem við nokkrar bekkjarsysturnar erum búnar að vinna í hörðum höndum  að í 6 mánuðu í prentun... úff ef einhver af ykkur er að hugsa um að fara í ritstjórn á skólablaði hugsið ykkur þá 2 um þetta er ógeðslega erfitt og rosalega tímafrekt.. Núna bara um helgina erum við búnar að eyða einhverjum tíma í blaðið og svo mánudagurinn og þriðjdagurinn fór svo algjörlega í blaðið.. En blaðið verður svolítið persónulegt ég er búin að troða Afa og Þórdísi í það og svo vorum við Sonja með 1 grein í því, ég bjó til myndaseríu fyrir staðarnemanna með hjálp Soffíu ... það var mjög gaman.. en vá hvað það eru til margar skemmtilegar myndir af Elítuni uss við hefðum geta verið með fylgirit með myndum af okkur.        Ég held að ég verði ekki bara ánægð að blaðið fari í prentun á morgun heldur verða Anna og Sonja líka rosalega ánægðar.. stelpur ég er allavega hætt að segja stelpur má ég hringja 1 símtal þegar við erum búnar að fara yfir þennan kafla,, eða ég gleymdi að hlusta ég var að lesa tölvupóst.. 

þetta er búið og nú er ég farin á klepp... eða allavega góða afslöppun.

Við erum að fara norður á föst ætlum í vísó í Hlíð en samkvæmt áreiðanlegri heimild þá er vel boðið þar.  Nú á lokaverkefnið hug minn allan og mikið hlakka ég til 22. maí þegar þetta allt er búið...


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 15:34:13 / Pálína

Strákar... ég hristi bara hausinn

 

Hvað er málið með stráka.. veit ekki alveg.  Maður fer á djammið og strákarnir sem að reyna við mann eru annað hvort fæddir 1985 -1987. uss hey já svo fær maður númerið frá einhverjum álíklegum þá fréttir maður að hann eigi bara kæró heima uss...  hvar eru allir góðu strákarnir... það hlýtur að vera einhverjir eftir handa okkur....

það er bara fínt að frétta.. ég fór suður á laugardaginn til að ná afmælinu hennar Steinunnar minnar. Sonja er enn fyrir norðan og kemur ekki fyrr en á miðvikudaginn.

Sonja fékk gesti um helgina Rebekka, Vignir, Sóla og KB komu og skemmtu sér konunglega að ég held.. ég skemmti mér allavega rosavel með þeim á föstudaginn.. og frést hefur að laugardagurinn hafi ekki verið síðri.

Það er alltaf gott og gaman að komast suður til mömmu og pabba:) hér ætla ég að vera í góðu yfirlæti hjá þeim. svo verður maður aðeins að vinna til þess að geta borgað Tailandsferðina..

Bið að heilsa norður dömur:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 16:55:00 / Pálína

hversu lélegur getur maður verið að blogga

Þegar líf manns snýst að mestu um að sitja í náttfötunum heima að skrifa ritgerð er ekkert gaman að blogga um líf sitt. En maður er nú víst búin að lofa að leyfa ættingjum og vinum að fylgjast með lífi manns...

Strax eftir árshátíðina var ég ( Pálína ) veik í 3 skipti síðan um áramót. En sögur fóru um að þetta væri svokölluð kaffi Ak veiki því aðeins ég Soffía og Eva fengum hana af vinahópnum sem þótti mjög skrýtið því við höfðum ekkert verið meira saman. Það væri helst að ég Anna og Sonja hefðum fengið pestina á sama tíma. En svo kom skýringin að þetta hefði verið kaffi Ak pestin því við 3 hefðum allar farið af árshátíðinni yfir á kaffi AK. Kaffi Ak pestin tók viku en þá fékk Anna Huld kvefpest. þegar Anna var búin að jafna sig fékk Sólveg pestina sem að við hinar 3 hefðum fengið. Svo að lokum er Sonja komin með kvefpestina sem Anna var með. já þetta getur verið skrýtið. En myndarlegt hefði það ekki verið ef við hefðum fengið pestina allar í einu. Hver ætti þá að fara út í apótek að kaupa pestarpakkann sem inniheldur paratabs, barna snýtubréf og neseril.

Frétt númer 2 er að ég er tilbúin að takast á við barneignir. he he já ég er búin að fara á foreldra námskeið og veit sko allt um barnauppeldi. ég vaknaði nú ekki bara einn morguninn með þá flugu í kollinum að í dag skuli ég fara á foreldranámskeið.. nei ég er ekki alveg svo ga ga ég fór með Sólveigu.. en hún á sko eftir að sjá eftir því, því nú verð ég með hana í boot camp þar sem hún að gera grindarbotnsæfingar 3 sinnum á dag.. en hún á eftir að þakka mér ég veit.

Við fórum suður núna um síðustu helgi að taka viðtal við hjúkkur á slysó í fossvogi. það var nú alls ekki skemmtiferð nema kannski suðurförin sjálf þar sem að á leiðinni var verið að skipuleggja Tailandsferð og makamál:) hehe Þegar í bæin var komið tók vinnan við sem var ekki svo skemmtilegt.. ég hafði ekki einu sinni tíma í heimsóknir;(

nú er maður komin aftur á Akureyri og Sonja meira að segja farin aftur suður ( var að fara að vinna um helgina) um helgina verður svo svaka djamm vísó í kvöld og svo voða flott matarboð hjá Strákunum í snobbinu. Sumir ætla þó að vera fullari en aðrir og meira að segja að stunda smá leikfimi.. he he nefni enginn nöfn en það verður gaman að fylgjast með þessu...

jæja best að drífa sig í sturtu svo maður verður shine fyrir kvöldið

já p.s. ef þið þekkið einhvern sem á fyrirtæki og vantar skattaafslátt þá er ég að selja styrktarlínu í blaðið mitt á 10.000 krónur kosta kaup..


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagatal
júlí - 2010
S M Þ M F F L
123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
FyrriNæsti